|
Heimsóknir
Í dag: 4 Alls: 27253
Dagatal
| júlí - 2010 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | | | | 1 | 2 | 3 | | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
| Fyrri | Næsti |
|
05.01.2009 04:33:07 / disa
er komin með átaks blogg á arndiso.blogspot.com Bæjó og kíkjið og fylgist með
»
29.10.2008 04:50:44 / disa
< >Það er sko svei mér kalt úti núna , er búin að vera upp í leikhúsi að gera sviðsmyndina klára með Ölmu í allt kvöld og næstum alla nótt Kom svo út í bíl og omg hvað það var orðið kalt , byrjað að snjóa og alles.
En já ég er ekki búin að blogga í heil langan tíma vegna þess bara að ég hafði ekki löngun til þess verð ég bara að segja . Nennti þessu bara ekki í sumar en maður einhvern veginn byrjar alltaf aftur á veturnar. Vinkonurnar eru líka búnar að vera að punga út börnum og svona alveg nóg að gera hjá þeim og mér að knúsa þessar kvísur sem að þær eignuðust.
Ég er komin á fullt í leikhúsið á ný og ekki leiðist mér það. Ég var valin varaformaður félagsins í ár og við erum að setja upp verk sem að ég Alma, Eva Björk og Steinunn sömdum um jólasveinanna og fjölskyldu þeirra sem er grín verk og bara skemmtilegt mæli með því að fólk skelli sér með yngri kynslóðina á þetta verk sem verður frumsýnt 7.des og verður alveg sýnt fram yfir jólin.
Ég ætla ekki að tala neitt um kreppuna er komin með ógeð af tali um hana. Það er svo margt sem kostar ekki neitt og er svo gaman , hver og einn þarf bara að finna einhvað við sitt hæfi , ég hef leikfélagi sem að kostar ekki neitt að vera meðlimur í og er geggjað gaman.
Ég er búin að vera að vinna svoldið eða réttara skrifað Svolítið á kaffi og finnst það bara gaman er aðalega að vinna á conero og skemmti mér bara konunglega þar með fólkinu sem er að djamma , já talandi um það á föstudaginn næsta verða tónleikar á conero með foreign monkeys eða man ekki nýja nafnið þeirra. Það er of erfitt fyrir mig að muna  Endilega allir að fjölmenna og koma og hlusta á smá rokk , ekta músik.
Svo er verlsunnarmannaballið um helgina en ætla að vinna bara í staðin í skýlinu nenni ekki á það en kanski maður kíkji aðeins á ballið hef ekki ákveðið mig ennþá.
Jæja hef þetta bara stutt og lag gott svona til að byrja með , bið að heilsa í bili.
Kveðja,
Arndís Ósk >
»
27.05.2008 19:36:09 / disa
Já það má með sanni segja að það sé margt búið að ské hjá mér enda svolítið langur tími síðan að ég bloggaði síðast , verð víst að viðurkenna að ég er stundum ekkert að nenna þessu , svo kemur það yfir mann að manni langar að blogga þannig að ég á nú kanski ekki eftir að vera dugleg að þessu í sumar. Verðið að fyrirgefa þið sem lesið þetta.
Annars það sem búið er að ské hjá mér var að ég var að hita upp fyrir stórsveitina Jet Black Joe og gekk það vonum framar.Við í tríóinu Breathe vorum allaveg mjög sátt eftir þetta ,nema svo var farið á tjútt með félögum í borginni og skemmti ég mér þar alveg konunglega. Daginn eftir var svo haldið til Erlu sem var reynda með mér deginum áður ,hún kom á tónleikana líka og trallaði svo með mér fram eftir nóttu. En já allaveg svo fór ég til hennar daginn eftir til Keflavíkur sem var bara alveg þrusu fjör og kynntist maður helling af fólki sem eru vinir hennar þar. Þakka ég henni Erlu fyrir geggjað fjör helgina 16-18. maí . 18. maí var ég svo 24. ára .......já ég veit árin telja en ég er bara svo ung í anda að það skiptir ekki máli , mér finnst ég alltaf yngjast með hverju árinu Mamma var svo sæt að hún gaf mér Fótsnyrtingu og skúringarkúst sem er by the way geggjaður maður hellir vatni og sápu í hann og ýtir síðan á einhver taka og þá sprautast þetta út og maður skúrar bara . Það tekur mann enga stund að skúra alla íbúðina. Takk fyrir það mamma.
Svo er næst á dagskrá hjá mér að ég er að fara að syngja upp í höll á laugardaginn og syngja í einhverjum þremur brúðkaupum í sumar. Ennþá spurning hvort að við eigum að koma fram á kvöldvökunni á þjóðhátíð. Þannig það er nóg farm undan hjá mér og tríóinu.
Jæja ætla láta þessa þvælu duga hér í bili.
Kveðja Arndís Ósk
»
30.04.2008 17:12:56 / disa
»
28.04.2008 13:52:51 / disa
Já litla systir mín er 17 ára í dag og fær bílprófið sitt í dag , til hamingju með allt Ása pjása. En helgin er liðin hér í eyjum og mikið var nú gaman á laugardeginum , þá var ég að leika í hárinu og beynt eftir það var farið að syngja upp í höll á flottustu tónleikum sem að ég hef séð á ævinni. Lokapartý leikfélagsins var svo þarna um kvöldið og þetta var bara eitt það skemmtilegasta partý sem að ég hef upplifað , ég hló gjörsamlega fyrir lífið, Þetta kvöld.En svo verðu víst einhvað fjör líka um helgina þar sem að Guðlaug vínkona er að koma heim ég hlakka ekkert smá mikið til að fá hana heim , búin að vera allt of lengi í rvk. JÆJA ég er ekki að nenna að blogga . bið að heilsa
Arndís Ósk
»
27.03.2008 03:13:32 / disa
Hvernig hafi þið það elsku lesendur, ég hef það bara að segjasta fínast og vona að það verði þannig þó að gengi krónunar er nú ekki það sem hrópa má húrra fyrir. En ef marka má fréttir á þetta nú ekki að ganga lengi svona , vonandi bara verður hún komin í lag á morgun fyrir blessuð fyrirtækin og þjóðina, ekki samt að það eigi eftir að gerast. Ég sem sagt nefni hér að ofan að mitt tækifæri kemur tveimur dögum fyrir mitt afmæli eða þann 16.maí 2008 munum við sem sagt hitta upp fyrir Jet black Joe. Þetta er það sem að mig hefur alltaf langað að gera (þar að segja að spila í laugardalshöll)allt mitt líf en stóri draumurinn er að flytja þar verk eftir mig með hljómsveit sinfoníunnar. Það er hollt að láta sér dreyma , það segi ég að minnsta kosti , það kostar allaveg ekki neitt . Ég eins og þið sjáið kannksi geri ég mikið af því .
En við Sæþór Vídó og Þórir Ólafs erum núna að fara á fullt með það að taka upp lögin sem að við höfum verið að spila og eflaust koma með tvö ný lög frá okkur (öfga spennandi)sem að vonandi þið fáið að heyra áður en við komum fram á stóra pallinum En ætla samt ekkert að lofa neinu þannig það er bara að bíða fyrir ykkur og sjá.
Hárið er búið að ganga alveg frábærleg og eru við ekkert smá ánægð með hvað bæjarbúar eru menningarlegir og láta sjá sig í bæjarleikhúsinu að sjá verkið sem er náttúrulega frábært verk. Það er búið að vera troðfullt á allar nema eina sýningu og voru þá bara örfá sæti laus.Síðasta sýning var meira segja meira en troðið og þurfti 12 auka sæti og vísa fullt af fólki frá sem er bara leiðinlegt þar sem að við viljum að allir komist.Það er meira að segja byrjað að panta fyrir næstu sýningu og vonumst við auðvitað til að fleirri komi og enn og aftur allt verði troðfullt.
Páska helgina var að líða og var það mikið fjör eins og páskum er einum lagið hér á eyjunni fögru. Mamma og pabbi eyddu meira að segja með mér páskunum og ekki nóg með að þau voru hjá mér voru líka litlu systur mínar og kærastar þeirra hérna þannig að litla sæta íbúðin mín var pökkuð. Frábært að fá þau . Pabbi setti upp fyrir mig uppþvottavélina og guð ég var eins og amerísk húsmóðir ég var svo ánægð nema að núna þarf ég að fara að bjóða fólki í mat til mín til að safna í vélina. Það kemur nú ekki mikið uppvask eftir mig eina Mamma og Pabbi settu líka fyrir mig gólflistana á gólfið og vá hvað það gerir mikinn mun að fá þá . Þannig að næst sem er á dagskrá hjá mér er að taka eldhúsinnréttinguna hjá mér í gegn og þá er þetta alveg eins og ég vil hafa það.
Það var nú líka ekki það leiðinlegast sem að maður lendir í þegar foreldrar manns koma heim yfir hátíðarnar er það þannig að þá fær maður mömmu mat og mamma eldaði þennan dýrindis hamborgarahrygg á páskadag. Takk fyrir það mamma. Ég er nefnilega ekki sú duglegast að elda þar sem að ég er ein og ef ég elda bíð ég alltaf einhverjum í mat þar sem að það er svo leiðinlegt að elda handa sér einni. Ég elda nú samt stundum fisk fyrir mig eina en ég held að það séu ekki margir af mínum vinum sem finnst fiskur jafn góður og mér .
Núna er ég sem sagt andvaka sem að gerist annsi oft hjá mér þar sem að ég er svo mikið að hugsa eða ég fer að lesa einhverja ógeðis bók eins og ég fór að gera núna. Sigþóra nefnilega lánaði mér bók sem heitir Duld sem er bók eftir Stephen King og guð ég verð svo hrædd að lesa hana að ég verð að hætta til að hugsa einhvað fallegt svo að ég drulli ekki á mig af hræðslu hérna ein.Verð að finna mér einhvað annað að lesa á nóttinni og lesa þessa yfir daginn
Mér langar svo til útlanda á einhverja geggjaða tónleika eins og til dæmis á Radiohead, Coldplay eða U2 tónleika er einhver til í að koma með mér let me know Eða á maður að fara til útlanda þar sem að sólin er hátt á lofti og liggja þar eins og skata , ég er nú reyndar ekki þessi sólbaðs tíba eða hvað jú ég er það. Þegar ég var á Kýpur var ég alltaf ti lí að fara í sólbað þegar færi gafst sem var reyndar ekki oft þar sem að við vorum á námskeiðinu yfir daginn en maður fékk stundum smá breik til að skella smá sól framan í sig. Ég öfunda alla sem eru í útlöndum núna þar sem að mig langar svo að fara. En maður er víst ekki milli og getur ekki gert allt sem að maður vill.Enda væri lífið nú ekki skemmtilegt ef það væri þannig mundi ég halda.
Jæja elskurnar er núna búin að láta draumana ráða í þessu bloggi og ætti satt besta að segja að fara láta þá ráða í draumaheiminum á koddanum, vonandi skemmtilegir draumar , ekki martröð eftir bókina .
Bið að heilsa í bili .Lifið heil og sæl og brosið framan í lífið því annars gerir það ekki ,það við ykkur.
Love ya
Arndís Ósk Atladóttir
»
19.03.2008 03:26:03 / disa
Hárið er það sem hefur verið að setja allt úr skorðum hérna hjá mér í blogg heiminum . Eins og flestir sem að lesa þvæluna frá mér vita að ég er að taka þátt í verki sem nefnist Hárið og flestir vita líka einnig hvaða verk það er . Þetta er eitt það skemmtilegast sem ég hef gert um ævina en það er reyndar ekki margt leiðinlegt sem ég hef gert heldur. Frumsýning var á föstudaginn síðast og var troðfullt og sýninginn var geggjuð , fólk er meira að segja að tala um að það hafi ekki sé jafn skemmtilegt leikrit hérna í Vestmannaeyjum sem er náttúrulega bara geggjað. Ég mæli eindregið með því að allir eyjamenn og aðrir gestir komi og sjái þessa stórkostlegu sýningu.
Annars er það af mér að frétta að Kristín og Ingi urðu 25 ára á mánudaginn og óska ég þeim innilega til hamingju með 50 árin Svo er manni bara boðið í fullt af teitum á föstudaginn langa en ég fer svo einnig að vinna á miðnæti upp í höll á barnum sem er bara fínt þar sem að ég get hvort sem er ekki farið á djammið vegna þess að það er sýning á laugardaginn og eins og fólk sem þekkir mig þá verð ég alltaf með þessa flottu viský rödd eftir skemmtileg heitin.Þannig að það er um að gera að græða bara pening á þessu í staðinn. 
Jessý vinkona kom í dag og Guðlaug líka og omg hvað það er alltaf gaman þegar þær koma heim , þær ásamt öllum hinum eru að koma á sýninguna á laugardaginn og verða þær á bekk með mömmu og pabba og fjölskyldunni minni þannig að það verður pottþétt enn þá meira gaman hjá þeim því mamma og reyndar við allar dæturnar hennar erfum þennan hávað og smittandi hlátur frá henni.Verð að viður kenna að mér kvíður svolítið fyrir þessu því að það er alltaf erfitt að leika þegar maður heyrir í sínu fólki.Sérstaklega þegar það hlær. En það er bara gaman af því
Mamma og Pabbi eru sem sagt að koma í kotið til mín á fimmtudagskvöldið og hlakkar mér mikið til þar sem að það er nú alltaf hlegið mikið þegar maður er í kringum þau . Verð þá að nefna hér eitt inn fyrst ég er farinn að tala um hana móður mína . Þannig var það að þegar snjórinn mikli var hérna þá vissi mamma að ég væri að fara að halda leikhús fjör hérna heima hjá mér og að við ætluðum út ,sem var nú ekki samt hægt á endanum,og var mikið fjör hérna heim , nema að hún reynir að hringja hingað heim og ég svara náttúrulega ekki þar sem að hún var að hringja klukkan 11:00 um morguninn nema hvað hún verður svo áhyggjufull að hún hringir í Jórunni systir og hélt að ég hefði orðið úti í snjónum , Jórunn hringir í Kristínu vinkonu og svona og svona nema svo nær mamma í mig og ég svara með minni hásu og djúpu rödd ,, Halló" mamma alveg " Guð minn góður sem betur fer náði ég í þig hvar varstu" ,, hvar var ég , ég er bara hérna upp í rúmi,,Mamma"guð minn góður ég er búin að gera dauðaleit af þér , ég hélt að þú hefðir verið úti.Ég spyr hana ,, mamma hvað er eiginlega klukkan " ,, Hún er 11 " ég spurði hana þarna hvort að hún væri einhvað rugluð af hverju hún væri eiginlega að leita að mér , Mamma segir þá ,, Arndís hefur litið út um gluggan " nema ég var svo sofandi þegar ég talaði við hana að ég svara ,, nei ert þú á glugganum" Ég vissi ekki hvert hún ætlaði í símanum því hláturinn var svo geggjaður , hún hló þarna dágóðan tíma og sagði svo þú ert svo klikkað barn, nei ég er ekki á glugganum það er mannhæða snjór úti og ég hélt að þú hefðir orðið úti í nótt á djamminu. En ég spyr bara elskulega fólk hvernig hefði ég átt að halda annað þar sem að það fyrst sem hún spyr mig að er , hefuru litið út um gluggan auðvitað hélt ég bara að hún væri á glugganum enda ekki ólíkt henni hahaha
Jæja læt þetta duga svona í bili , bið bara að heilsa og minni enn og aftur alla á að koma á Hárið . Love ya Arndís Ósk
»
18.02.2008 02:09:13 / disa
Hvað er að frétta ég er nú kanski ekki eins dugleg að þessu og þið vonuðuð  hahaha nei nei ég er nú samt skárri en margir aðrir bloggarar. En hvað um það , það er svo sem ekki mikið að frétta af mér nema að ég er öfga dugleg í ræktinni og er bara að taka á honum stóra mínum  Öfga gaman samt. Og náttúrulega allt fullt að gera í leikhúsinu og vinna . En bara svo þið vitið Dívu vinkonur mínar þá er frumsýningar helgin þriðju helgina í mars man ekki alveg hvaða dagsetning það er held að það sé 14.mars en ekki með það á hreinu. Jessý var hérna í eyjum hjá okkur um helgina og rosalega var gaman að hitta hana þó að það var stutt og kallinn hennar hann frænda minn , má nú ekki gleyma honum annars fæ ég skammir   Ég hef svo sem ekkert annað að segja hérna ég geri nú ekki mikið þessa dagana. En þetta var aðallega gert fyrir þig Guðlaug mín og ég vona að þú hafir haft gaman af þessu litla bloggi mínu og svo hlakka ég geggjað til þegar þú og Svenni komið , ég er farinn að þrá með þér kaffisull hahaha Kv , Arndís Ósk .
»
25.01.2008 02:02:07 / disa
Það er sko greinilegt að ég var þreytt í gær þegar ég skrifa þetta blessaða blogg sem ég kom með. Stafsetningarvillur út um allt ..óþolandi þegar það gerist. En dagurinn hjá mér í dag var fremur hefðbundinn vaknaði ekki snemma sem að gerist sjaldan þar sem að ég er B manneskja elska að vaka á nóttinni að gera nákvæmlega ekki neitt nema að hanga í tölvunni og lesa blogg annara og annað eins , eins og að horfa á tv þoli ekki að ég sé með svona margar sjónvarðsstöðvar , þá glápir maður langt fram á nótt En já ég vaknaði í hádeginu sem sagt eftir að hafa barið mig liggur við í svefn klukkan 05:00 (frekar pirrandi) . Þannig var með mál að ég var gjörsamlega að drepast úr harðsperum í nótt og gat varla snúið mér vegna verkja um allan líkama. Ég fór þess vegna í bað klukkan 01.00 og teigði þar á og leið miklu betur eftir það nema hvað ég líka glaðvaknaði svona eftir það og var bara engan veginn þreytt lengur. En já ég vaknaði í hádeginu og gerði mig til fyrir ræktina og var nú reyndar ekki í miklu stuði þannig að ég var bara í 45.mín í ræktinni en ég drullaði mér þó allavega .Svo starx eftir ræktina var farið sveitt og rjóð í kinnum í vinnu niður í vosbúð sem er bara fyrir neðan Hressó , ekki slæmt að hafa þetta þarna fyrir neðan sig . Nema hvað Silja Rós var svo sniðug að koma með flakkarann með sér og þá gláptum við á Gosssip girl sem eru snildar þættir . Kominn var svo tími til að drulla sér heim eftir vinnu og skellt sér í heitt bað til að verða ekki eins slæm og fyrri nóttina(sem sagt úr verkjum um líkaman), kom ekki síðan Sædís vinkona í heimsókn og mikið er nú alltaf gaman að fá svona heimsóknir á kvöldin verst að við vinkonurnar skulum ekki drekka kaffi þá væri þetta svona ekta eldhús kellingar. Nema hvað svo eftir að hún var farinn var baðið orðið kalt og ég lét renna aftur í það. Heitt og notanlegt , þannig eftir dágóðan tíma í baðinu var maður orðin skínandi hreinn og ilmaði líka þetta afskaplega vel .Haldið var af stað niður í leikhús á dansæfingu sem að var mjög skemmtileg allir pirraði og flottir á því eftir ítrekaðar æfingar (sko einn dans sem að við erum að læra)og miklar spurningar á danshöfundana (greyin). Ég kem við á leiðinni í leikhúsið niðrí skýli og þar sé ég líka þessa ógeðslegu fyrirsögn á DV um að það sé mikið af íslenku barna kálmi og það voru meira að segja myndir í Dv sem að sanna það , omg hvað fær fólk til að skoða svona viðbjóð . Ég átti vægast sagt orð og ég og Kristjana sem er að vinna niðrí skýli stóðum og göftum yfir þessu . Mér finnst að fólk sem gerir svona hljóti að vera virkilega brenglað í höfðinu og eigi að leita sér hjálpar og ef það gerir það ekki má þessir viðjóðir drepast fyrir mér (ég veit að ég er harðorða en kem þessu ekki fínlegra frá mér ) Haldið var síðan heim eftir leikhúsæfingu og það var nú ekki blíðan sem tók á móti manni þegar maður labbaði út úr húsinu. Nei það var snjófok dauðans og þegar ég var að keyra var ég eins og blindur hvolpur vissi ekkert hvað ég var að gera . En ég komst nú samt heil á húfi heim Ég horfði á leikinn í gær og líka á beina útsendingu héðan úr eyjum vegna þakkargjörðarhártíðar sem haldin var til heiðurs örugglega almætinu vegna þess að allir komust heilir á húfi héðaní gosinu 1973. En þetta var bara þokkalega skemmtilegt en mér fannst nú samt best þegar þeir tóku viðtalið við Ómar á fréttum og spurðu hann út í borgarpólitíkina eftir að þetta hefði nú gerst einu sinni hér í eyjum með hann Andrés barkara. Það er víst einhvað líkt því sem Ólafur M var að gera. Hann svaraði því að reykvíkingar væru bara einfaldlega alltaf á eftir eyjamönnum . Ég grenjaði úr hlátri og ég komst nú ekki hjá því að brosa líka þegar Ingi Þór Þórarinsson var að tala um tónlistarlífið hér á eyjunni og kom með smá áróður á bærjarstjórn. Ég og Jórunn litum á hvor aðra og sögðum báðar þarna var nú smá áróður  En jæja held að þetta sé komið nóg að bulli og rugli Biða að heilsa . Arndís Ósk Atladóttir.
»
24.01.2008 01:47:46 / disa
Ég hef orðið vör við það að ég hef meiri þörf á því blogga hér inn áveraldar vefinn ..ekki af því að ég hef svo mikið að segja ykkur heldur vegna þess að vinirnir og vandamennirnir finnst ég ekki blogga nóg þannig að hér kemur eitt um nákvæmleg ekkert og allt. Það sem er að gerast núna er það að ég er nýbúin að skrá mig í Sætar stelpur sem er námskeið í hressó og omg hvað það er geggjaðslega gaman mikið af frábærum konum þar .Þetta er frábær hópur.Gaman líka þar sem að Ása vinkona og Ásta Steinunn í leikfélaginu eru þarna með mér og ég næ að taka þær alltaf með mér í ræktina þegar það er ekki tími fyrir okkur . Ég er svo vangefin að ég verð að hafa fólk í kringum mig alltaf meira að segja í ræktinni ekta ég . Já hvað á ég svo að koma með meira .....Hugs..hugs..hugsssssss. Já um helgina eins og ég nefndi nú örugglega er Dívu hittingur hjá Söru og eins að vanda eru þar komnar saman all margar skellibjöllur en ég er nú kannski ein sú versta En það er bú allt í því fínast verður að vera ein sem er með mestu lætinn ...en ef Guðlaug og Jessý kemur er ég ekkert að hafa áhyggjur þær sjá alltaf um að koma með lætin og gleðina og svo hlæjum við eins og skéssur Ilove it Sveinsína ein af vinkonu hópnum er alveg orðin kasólett enda ekki nema 8.dagar þangað til að hún á að eiga eða er allaveg set 1.feb en er það ekki þannig yfirleitt að þær ganga aðeins yfir með fyrsta barn eða er það bara misjafnt? En þetta verður fyrst barnið í vinkonu hópnum og greyið Sveinsína hún á ekki eftir að frá frið fyrir okkur og þetta barn verður það dekraðasta í heiminum En hún kemur um helgina og ætlum við komum henni ekki af stað með hlátursköstunum frá okkur  Jæja segi þetta bara gott í bili ...svona í nóttinni . Góða nótt ... kem svo aftur vonadi fljót með einhvað skrassandi . Arndís Ósk
»
16.01.2008 02:06:41 / disa
Jebb Jebb Jebb krakkar mínir núna kemur eitt stykki blogg frá mér um heima og geima ......nei nei segi svona . Ég hef haft nóg að gera síðan ég kom heim eftir áramót .... já elskurnar gleðilegt nýtt ár og vonandi eruð þið búin að hafa það sem allra best yfir hátíðarnar og fram á árið. Núna er ég búin að troða mér í leikhúsið ....enn eina ferðina , og guð hvað þetta er skemmtilegt var alveg búin að gleyma hversu skemmtilegt þetta er . Það er líka svo gaman að vera þarna , þar sem að það eru margir leikarar sem voru í nunnulífi aftur núna . En þetta árið á að setja upp hárið sem ég held að allir kannist við. Svo er búið að vera brjálað að gera í söng og því fer held ég ekkert að linna .Ég er að fara að syngja á ÍBV slútti eða einhverri verðlauna afhendingu ,og þann 2.feb fer ég svo að syngja á þorrablóti. Svo er náttúrulega vert að minna á að ég og Þórir og Sæþór erum að fara að spila á Jet black joe tónleikunum 16.maí sem er tveimur dögum fyrir my birthday.... þá reyndar orðin heldur gömul finnst mér en ég er alltaf svo ung í anda að það svo sem skiptir ekki neinu máli. Þannig að elsku vinir ef ykkur finnst ég vera að sniðganga ykkur þá vitið þið það að það er brjálað að gera hjá mér eins og mér finnst reynda best að hafa það. En talandi um leikhúsið þá var farið á skrall eftir fyrsta daginn á leiklistarnámskeiðinu og maður fékk svona flassback þegar maður hitti alla sem voru með manni í nunnulíf. Vá hvað það var gaman . Vona að þetta tímabil verður eins skemmtilegt og það síðasta. Ég bauð henni móður minn á Frostrósir um jólin og Guð minn góður hvað þetta voru skemmtilegir tónleikar þó að mér hafi fundist Margrét Eir og Hera alveg skara fram úr af sönkonunum . Það var líka gaman að hafa svona tenóra þarna með . Þeir sem ekki vita þá finnst mér klassísk tónlist ein sú rómantískasta tónlist sem heimurinn hefur gefið af sér . I love it . Mamma var líka alveg í skýjunum yfir þessu , sem að var alveg frábært þar sem að þetta var nú líka jólagjöfin mín til hennar. Mæli eindregið með því að ef þið eruð í vandræðum með gjafir handa gamla fólkinu sem að á yfirleitt allt .. þá um að gera að fara með þau á tónleika . Músík gefur ekkert nema gott frá sér nema kannski þessi blessaða dauðarokks ógeð. Stelpurnar eru allar farnar upp á land aftur í skóla nema hún Sara okkar sem fer til Ítalíu 1.feb en það verður smá kveðju teyti hjá henni fyrir okkur Dívurnar . Takk fyrir það Sara mín ..þó að það séum nú frekar við sem eigum að vera halda þetta handa þér . Ég er byrjuð í skólanum og finnst bara gaman eða eins og er Vona að mér muni ganga sem best í þeim geira. Omg vitið í dag var svo mikill snjór að ég man ekki eftir jafn miklum snjó síðan 1993 og það eru nú nokkuð mörg ár síðan það var . En mér finnst hann nu alltaf jafn fallegur .Ég festi mig tvisvar í dag en það var nú ekkert mál að redda því eða allaveg svona á endanum . Þá voru jeppakarlarnir komnir á stjá til að væntalega leika sér og hjálpa öðrum  Jæja læt þetta vera gott í bili frá snjólandi . Love ya Arndís Ósk Atladóttir.
»
24.12.2007 16:01:10 / disa
Gleðileg jól elsku blogglesendur og farsælt komandi ár. Þakka það liðna. Kveðja Arndís Ósk
»
29.11.2007 02:25:18 / disa
Það er naumast að maður er duglegur að blogga!!! Ég fæ pottþétt verðlaun fyrir að vera lélegasti bloggari í heimi Já en komið þið blessuð og sæl og mikið er nú gaman að blogga hérna, maður getur allaveg ekki kvartað undan kommentum frá ykkur fallega fólkið mitt . Og Jórunn syss hérna kemur eitt stykki blogg frá mér um allt og ekkert sem er að gerast í lífi mínu. Jóla jóla brjálæðið er að byrja , fólk er farið að skreyta og mér finnst bærinn alltaf lifna við þegar jólin eru að ganga í garð.Ég ætla einmitt um helgina að versla smá jólaskraut til að skreyta hjá mér , þar sem að ég á ekki neitt jólaskraut. En svo er líka merkur dagur framundan,þann 9.des er ég búin að eiga íbúðina mína í 1.ár. Mér finnst eins og það hafi skeð í gær nema kannski að maður á meira af dóti heldur en þegar maður byrjaði fyrst. Þannig að mér finnst að ég verði að skreyta yndilegu íbúðina mína í tilefni þess að hún er nú jóla íbúð Ég ætla nú reyndar ekki að eyða jólunum hér á eyjunni fögru heldur ætla ég að fara til mömmu og pabba yfir hátíðarnar , ég kem heim reyndar 27.des til 30.des þar sem að ég er að fara að syngja á einhverjum jóla tónleikum . Ég er svo að fara að syngja á jólahlaðborði um helgina og líka á coneró þar sem að sparisjóðs starfsmenn eru að fara að fagna einhverju” líklegast jólunum”  Ég er svo að fá gesti um helgina er að frá frænkur mínar Guðlaugu og Síu og litla soninn hennar Guðlaugar sem heitir Stefán Egill eða babydiddo eins og mamma kallar hann. Það verður bara gaman , mér finnst alltaf gaman að fá heimsóknir . Það versta kanski við þetta er að það er brjálað að gera hjá mér í vinnu þessa helgi . En ég reyni að eiga einhvern tíma með þeim. Þær eru samt svo tillitssamar að þetta er nú í lagi. Það er búið að vera nóg að gera í vinnunni því að fjöldi af krökkum sækir Féló , þvílíka aðsókn hef ég ekki séð síðan að ég byrjaði við erum aldrei með minna en 40. unglinga á staðnum . Mest sem hefur komið eru 101 og vá það var troðið . En þetta er auðvitað bara gaman og mikið hlegið og leikið sér. Nú fara allir að byrja í prófum og þá er lítið um manninn í bænum en sem betur fer er þetta fljótt að líða þá fer allt á fullt og mikið líf er í bænum okkar ,svo sér maður fólk með jólainnkaupinn og svona, allt svo vinarlegt. En talandi um jólainnkaupin , ég var að spyrja mömmu og pabba hvað þau vildu og auðvita svaraði Pabbi að hann vildi fá bók og ég spurði mömmu hvort að honum langaði nú ekki í einhvað annað svona til tilbreytinga þar sem að hann vill alltaf fá bækur ég skil ekki hvernig hann kemur öllum þessum bókum fyrir sem hann hefur keypt sér eða fengið í gjöf , en þetta vildi hann bara fá og reyndar bað um eina sérstaka bók sem heitir Askja , sem er skáldsaga byggð á vestmannaeyjum “held ég fari með það rétt”,ég var nú bara þó nokkuð ánægð með það , þar sem að ég get þá lesið hana á eftir honum J En svo var komið að mömmu og ég segi “ mamma hvað langar þér í ,, þá segir hún mig langar bara líka í bók , ég fór að velta því fyrir mér hvort að þau treystu mér ekki fyrir því að kaupa einhvað annað en bækur , ég spyr hana” ertu ekki að djóka,, hún svara nei mig langar í Arnald svo að ég bara játa því að hún muni fá hana. Heyri þið svo kemur að Elísubetur systur og hún hugsar sig aðeins um og svarar síða “ææææjjjiii BARA BÓK,, hvað er í gangi hugsa ég en varð svo mjög feginn, þetta verða auðveld jól fyrir mig , þetta verða bóka jól . Svo var ég einhvað að gera grín af þeim að þau væru svo mikilir nördar að vilja alltaf bara bækur og við hlógum bara að þessu gríni mínu nema hvað mamma spyr mig hvað mig langi í og ég svara blandara þá fer mamma að hlægja og segir að það sé sko greinilegt að maður sé að byrja að búa og safna sé í búið því að í fyrra þá fékk ég ryksugu og bað um hana . Venjulega þá hugsar maður um að gefa einhverjum gjafir sem að það á ,ekki einhveð sem annar getur notað en þegar maður er komin á aldur þá lætur maður frekar gefa sér það sem manni vantar í stað einhverrar fatalarfa sem að maður notar kanski tvisvar. Jólin eru líka svo öðruvísi þegar maður er eldri og allir í fjölskyldunni eru orðnir fullornir því þá eru pakkarnir einskyns virði en fjölskyldan allt og að verða í faðmi þeirra best .Jæja nóg komið um jólin í bili Ég ætla nú bara ekki að hafa þetta lengra enda ágætis blogg í þetta skiptið en ef ég blogga ekki aftur fyrir jólin segi ég bara gleðileg jól og óska ykkur farsældar á komandi ári . Love ya . Arndís Ósk.
»
10.10.2007 22:35:56 / disa
Halló halló babes HVAÐ ER AÐ FRÉTTA !!!! Það er sko allt flott að frétta af mér ,það er sko búið að vera nóg að gera hjá mér , við í féló vorum að halda Landsmót Samfés um helgina og það gekk allt bara alveg frábærlega vel og svo er ég að fara að syngja næstu helgi og ætla að syngja öfga flott lög . Ég verð öfga sæt á þessu balli þannig að ef þið sjáið öfga sæta stelpu á ballinu þá er það ég .Svo er maður að alltaf að vinna og vinna og hanga hjá Kristínu og glápa á Tv. En ég veit ekki hvað ég á svo sem að segja ykkur meira nema kannski að Guðlaug og Jessý eru að koma um helgina og ég er eiginlega að trillast því að mér hlakkar svo til að sjá þær og knúsa þær af lífsins sálar kröftum  Segjum þetta gott þangað til eftir helgi. Love ya Arndís Ósk Atladóttir
»
27.09.2007 00:59:39 / disa
Já hún móðir mín er fimmtug í dag hún og pabbi gerði sér bara glaðan dag í gær í fóru til tenerife í gær og ætla að hafa það voðalega kósí þar í viku . Til hamingju með daginn mamma mín :* Það er nú ekki mikið að frétta af mér , ég er bara á fulli að vinna eins og kannski vanalega en það er svoldið mikið að gera núna með að plana landsmót félagsmiðstöðva sem haldið verður hér í eyjum og svo var náttúrulega féló að flytja niður í rauðagerði og allt komið á fullt þar vorum í gær að flytja biljardborðin yfir í rauðagerði og omg hvað krakkarnir mínir eru duglegstir . Þau báru 3 stykki niður 3 hæðir . Hefði ekki getað þetta án þeirra . Takk takk takk. Ég keypti mér bíl um daginn öfga sætann yaris luna . Hann er bara fallegastur. Kýkti til Kristínar í kvöld eftir vinnu og náði að dofla hana til að verða smiðjustjóri í bakarasmiðju sem verður á landsmótinu vá hvað ég var fegin. Ég held bara að allt sé að verða tilbúið fyrir það. En hef svo sem ekkert meira að segja . Love ya Arndís ósk
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|
Könnun
Á að koma að sjá Jólaverkið Grýla gerir uppreisn um Jólin.
Já
3 atkvæði
Nei
1 atkvæði
Kanski
1 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 5
Svona margir dagar �?�?�?�??�?�?����?��?�?�� �
Fyrir 600 dögum
Frumsýning á Grýla gerir uppreisn
|